top of page

UMHVERFISSTEFNA FROST

1.0 Tilgangur og umfang
Að lýsa umhverfisstefnu Frost

2.0 Almennt
Markmið Frost er að starfa í sátt við umhverfið og leggja sitt að mörkum til samfélagsins. Frost mun leitast við að lágmarka skaðleg umhverfisáhrif að starfseminni við rekstur og innkaup með endurnýtingu og orkusparnaði þar sem því verður við komið. Minni orkunotkun og minni losun skaðlegra lofttegunda og úrgangsefna verði höfð að leiðarljósi við val á bifreiðum og hagræðingu í ferðum á vegum fyrirtækisins. Til þess að ná þessum markmiðum ætlar Frost að auka skilning, áhuga og þekkingu starfsfólks á umhverfismálum. Umhverfisstefna fyrirtækisins skal endurskoðuð reglulega með umbætur í umhverfismálum í huga. 

3.0 Flokkun úrgangs
Komið verði á flokkun og nýtingu úrgangs sem möguleikar eru til að endurnýta á einhvern hátt.

  • Að flokka dagblöð og annan pappír og skila í viðeigandi söfnunargáma.

  • Að drykkjarfernur verði skolaðar, þurrkaðar og farið með í endurvinnslugáma.

  • Að áldósum, plast- og glerflöskum sé safnað og skilað til endurvinnslu

  • Að bylgjupappa og öðrum pappa verði safnað og skilað til endurvinnslu

  • Að spilliefnum, s.s. kælimiðlum, olíur, prenthylkjum, rafhlöðum og öðru sem inniheldur varasöm  efni  verði skilað á viðeigandi móttökustað.

4.0 Orkunotkun
Stefnt er að minni orkunotkun og losun úrgangsefna.

  • Slökkva ljós og stöðva rafmagnstæki þegar ekki er verið að nota þau.

  • Að hafa umhverfisvernd að leiðarljósi við innkaup og rekstur bifreiða.

  • Hagræðing og orkusparnur í allri hönnunarvinnu í verkefnum Frost.

5.0 Nærumhverfi

 

  • Að takmarka notkun hreinsiefna og leggja áherslu á að nota vistvæn efni.

  • Áhersla skal lögð á að halda umhverfi fyrirtækisins hreinu og snyrtilegu utan dyra sem innan.

  • Umhverfisstarf skal vera eðlilegur hluti af starfi allra starfsmanna Frost.

 

 

Frost skuldbindur sig til að fylgja öllum lögum og reglugerðum um starfsemi félagsins og varða umhverfið. 

bottom of page